Gerðu næsta hópviðburð ógleymanlegan hjá Bullseye

Bókaðu næsta hópviðburð á 60 sekúndum

Fullkomin blanda af pílu, karaoke og matseðli sem allir elska.

Bókunarkerfið leyfir þér að ganga frábókun strax. Engar fyrirspurnir, ekkert vesen.

Athugið að hópabókanir eiga við 12 manns eða fleiri.
verð er breytilegt eftir dögum vikunnar og tíma dags.

Hópapakkar

Píla & drykkir

Grípið pílurnar, safnið liðinu og látið vaða. Partí píla er stórskemmtileg útgáfa af hefðbundinni píluíþrótt, með litríkum leikjum og keppnisanda sem hentar öllum, óháð reynslu. Að leiknum loknum er tilvalið að skála fyrir sigrinum, eða ósigrinum.

Verð frá 3.190 kr. á mann

Píla & hlaðborð

Gæðið ykkur á ljúffengu hlaðborði á meðan pílurnar fljúga. Hlaðborðið inniheldur pizzur heimagerðar frá grunni með skemmtilegu og öðruvísi áleggi, okkar frægu brauðstöngum sem koma á óvart, og ídýfum. Bættu við stökkum kjúklingabitum og nachos ef þú vilt meira!

Verð frá 4.690 kr. á mann

Píla, drykkir & hlaðborð

Fyrir þau sem vilja fá allt, í einum pakka. Tveir tímar af partí pílu, matur fyrir hópinn og drykkir til að fagna kvöldinu almennilega. Þetta er kvöldið sem enginn gleymir.

Verð frá 7.590 kr. á mann

Viltu heyra í okkur?

Fylltu út formið og við svörum þér með hæl. Þú getur einnig sent okkur tölvupóst á hopar@bullseye.is ef það hentar þér betur.

Hafa samband

"(Áskilið)" indicates required fields

Dagsetning viðburðar

Hópar Algengar spurningar

Þú getur bókað fyrir allt að 36 manns hér. Fyrir fleiri er best að senda inn fyrirspurn.

Já, við bjóðum fyrirtækjum og stofnunum upp á að greiða með reikningi eða fá sendan rafrænan reikning. Til þess að borga með reikning þarf hópabókun að fara fram í gegnum fyrirspurn, bókunarkerfið okkar krefst 50% staðfestingargjalds með korti. 
Athugið að það er alltaf krafist staðfestingargjalds, reikningur verður sendur fyrir 50% af heildarupphæð um leið og bókun er staðfest.

Við viljum endilega sýna sveigjanleika! Hægt er að afbóka með fullri endurgreiðslu allt að 48 tíma fyrir upphaf bókunar. Sé afbókað 12–48 klukkustundum fyrir upphaf bókunar er 50% endurgreitt. Eftir það eru bókanir ekki endurgreiddar.

Við mælum með að mæta um 10-15 mínútum áður en leiktíminn byrjar til að panta drykki og græja pílurnar. Ef þið mætið of seint styttist því miður leiktíminn ykkar sem því nemur, þar sem aðrar bókanir gætu verið á eftir.

Fyrir karókíhópa eru herbergin algjörlega prívat. Fyrir píluhópa sjáum við til þess að þið fáið píluspjöld sem liggja saman svo hópurinn sé allur á sama svæði. Ef þú vilt svæði út af fyrir þig geturðu leigt sal þar sem píluspjöldin eru innifalin, skoðaðu salina hér.

Mörgum hópum finnst þægilegt að kaupa drykkjarmiða fyrirfram sem gestir geta skipt út fyrir bjór, vín eða gos á barnum. Þetta einfaldar uppgjörið og gerir kvöldið þægilegra fyrir skipuleggjendur.

Við erum með vegan og vegetarian mat, glúteinlaus matur er erfiðari.

Þau eru með sæti fyrir allt að 8 manns, en geta verið fleiri í herberginu. 

Klassískt píla er leikurinn sem þú þekkir úr sjónvarpinu (líkt og 301 eða 501). Þetta snýst um nákvæmni og að lækka skorið niður í núll. Fullkomið fyrir þá sem vilja smá keppni.

Partí píla snýst meira um fjörið! Þetta eru tölvustýrðir leikir með grafík þar sem þú getur spilað fótbolta, golf, „tæmt bjórglas“ eða reynt að rífa niður kastala. Engin talnaglöggni nauðsynleg – bara vitleysa og fjör!

Þú getur fengið tilboð í salaraleigu og séð verðlista hér. Innifalið í salarleigu er aðgangur að öllum píluspjöldum og karaoke herbergi eins og við á.

Stærsti pílustaður í heimi!

Við erum með klassísk Scolia sjálfteljandi píluspjöld og partí píluspjöld sem bjóða upp á fjölbreytta grafíska leiki, fullkomið fyrir byrjendur.

Við elskum karaoke!

Tvö glæsileg og glæný karaoke herbergi eru nú tilbúin! Syngdu með þínu besta fólki í flottustu karaoke herbergjum landsins (að okkar mati)!

Matur gerður frá grunni

Við erum með heimsklassa pizzabakara sem hnoða deig, hægelda nautakjöt, og marinera kjúkling tímunum saman til að gefa þér bestu mögulegu matarupplifun.

viltu meira fjör?

Fáðu fréttir af tilboðum og viðburðum