Mjúkt flauel, ofvaxin mynstur og almennt seventies dive drama í rauða rýminu.
Herbergið er staðsett á efri hæð hússins (Silfurtungl), og rúmar 8 manns í sæti. Herbergið er með diskókúlu, rauðum velúr bekkjum, rauðu retro veggfóðri, tveimur hljóðnemum, frábæru hljóðkerfi og tveimur skjám.