Fullkomin blanda af pílu, karaoke og matseðli sem allir elska.
Notaðu reiknivélina hér að neðan til að sjá verð og senda fyrirspurn samstundis.
Drykkjamiðar gilda fyrir 500ml bjór, vínglas eða víngos.
Ertu með færri en 15? Ekki málið! Þú getur bókað píluspjöld beint hér og bætt við mat og drykk í bókunarferlinu.






Bullseye er stærsti pílustaður í heimi og nóg pláss fyrir pílukast. Við erum með 30 klassísk Scolia sjálfteljandi píluspjöld og 9 partí píluspjöld sem bjóða upp á fjölbreytta grafíska leiki, fullkomið fyrir byrjendur.
Bókaðu 110 mínútur í pílu og bjóddu gestum upp á tvo drykkjarmiða á mann. Drykkjarmiði gildir fyrir bjór (500 ml), rauðvín, hvítvín, eða víngos.
110 mínútur klassísk eða partí píla
Bókaðu 110 mínútur í pílu og glæsilegt hlaðborð.
Úrval af pizzum og stökkir marineraðir kjúklingabitar með ídýfum
Úrval af pizzum, stökkir marineraðir kjúklingabitar með ídýfum, lúxus brauðstangir, parmesan franskar og nachos
Bókaðu 110 mínútur í pílu, glæsilegt hlaðborð og bjóddu gestum upp á tvo drykkjarmiða á mann. Drykkjarmiði gildir fyrir bjór (500 ml), rauðvín, hvítvín, eða víngos.
Úrval af pizzum og stökkir marineraðir kjúklingabitar með ídýfum
Úrval af pizzum, stökkir marineraðir kjúklingabitar með ídýfum, lúxus brauðstangir, parmesan franskar og nachos
Þegar er um hópabókun að ræða þá er ykkur úthlutað píluspjöldum sem eru laus. Til þess að fá heilt rými út af fyrir ykkur og frjálsan aðgang að öllum píluspjöldum er betra að bóka sal.
Mælt er með bókun á sal ef um er að ræða 45 manns eða fleiri, en geta verið færri. Við erum með pláss fyrir allt að 1.000 manns í húsinu.
Einfaldast er að bóka píluspjöld og karókíherbergi hér á síðunni okkar fyrir færri en 15 manns. Fyrir stærri hópa (15+) er best að fylla út formið hér svo við getum tryggt ykkur besta pakkann. Þið getið einnig sent okkur línu á hopar@bullseye.is
Já, við bjóðum fyrirtækjum og stofnunum upp á að greiða með reikningi eða fá sendan rafrænan reikning. Vinsamlegast látið vita af þessu þegar fyrirspurn er send svo við getum sett þetta rétt upp í kerfinu okkar.
Við viljum endilega sýna sveigjanleika! Hægt er að breyta endanlegum fjölda (og þar með matarpöntun) með allt að 48 klukkustunda fyrirvara. Eftir það er bókunin bindandi þar sem við höfum þegar gert ráðstafanir í eldhúsi og tekið frá píluspjöld eða herbergi.
Við mælum með að mæta um 10-15 mínútum áður en leiktíminn byrjar til að panta drykki og græja pílurnar. Ef þið mætið of seint styttist því miður leiktíminn ykkar sem því nemur, þar sem aðrar bókanir gætu verið á eftir.
Fyrir karókíhópa eru herbergin algjörlega prívat. Fyrir píluhópa sjáum við til þess að þið fáið píluspjöld sem liggja saman svo hópurinn sé allur á sama svæði. Ef þú vilt svæði út af fyrir þig geturðu leigt sal þar sem píluspjöldin eru innifalin, skoðaðu salina hér.
Mörgum hópum finnst þægilegt að kaupa drykkjarmiða fyrirfram sem gestir geta skipt út fyrir bjór, vín eða gos á barnum. Þetta einfaldar uppgjörið og gerir kvöldið þægilegra fyrir skipuleggjendur.
Við erum með vegan og vegetarian mat, glúteinlaus matur er erfiðari.
Þau eru með sæti fyrir 8 manns, en geta verið fleiri í herberginu.
Klassískt píla er leikurinn sem þú þekkir úr sjónvarpinu (líkt og 301 eða 501). Þetta snýst um nákvæmni og að lækka skorið niður í núll. Fullkomið fyrir þá sem vilja smá keppni.
Partí píla snýst meira um fjörið! Þetta eru tölvustýrðir leikir með grafík þar sem þú getur spilað fótbolta, golf, „tæmt bjórglas“ eða reynt að rífa niður kastala. Engin talnaglöggni nauðsynleg – bara vitleysa og fjör!
Þú getur fengið tilboð í salaraleigu og séð verðlista hér. Innifalið í salarleigu er aðgangur að öllum píluspjöldum.