Við mælum hiklaust með því að bóka borð eða herbergi fyrirfram, sérstaklega um helgar, til að tryggja að þið komist að. En það er sjálfsagt að kíkja við og athuga hvort það sé laust!
Þú getur hætt við bókun allt að 48 tíma áður. Ef þú vilt afbóka pílu ferð þú í staðfestingarpóstinn þinn, smellir á „nánar um pöntun“ og svo „Hætta við bókun“. Ekki er tekið við afbókunum í skilaboðum, tölvupósti, eða síma.
Þú getur einnig breytt bókun í Sinna appinu.
Einfaldast er að bóka píluspjöld og karókíherbergi hér á síðunni okkar fyrir færri en 15 manns. Fyrir stærri hópa (15+) er best að fylla út formið hér svo við getum tryggt ykkur besta pakkann. Þið getið einnig sent okkur línu á hopar@bullseye.is
Við mælum með að mæta um 10-15 mínútum áður en leiktíminn byrjar til að panta drykki og græja pílurnar. Ef þið mætið of seint styttist því miður leiktíminn ykkar sem því nemur, þar sem aðrar bókanir gætu verið á eftir.
Partý-pílan okkar er hönnuð fyrir byrjendur og tölvan sér um allan reikning. Við sýnum ykkur líka hvernig þetta virkar áður en þið byrjið.
Við mælum með 2–6 manns á hvert píluspjald til að allir fái sem mest út úr leiknum, en geta verið fleiri. Ef þið eruð fleiri getið þið bókað spjöld hlið við hlið.
Já! Við erum með tvö prívat karaokeherbergi. Sjá hér.
Nei, við erum með frábæran matseðil (pizzur, nachos og fleira) og vel búinn bar. Sjá matseðil hér.
Já, það er þjónusta við píluspjöldin svo þið þurfið aldrei að gera hlé á leiknum til að panta næsta hring eða pizzu.
Vinsamlegast kíktu til okkar á opnunartíma og spurðu starfsfólkið okkar.