Við elskum karaoke!

Tvö glæný og glæsileg karaoke herbergi eru tilbúin! Syngdu af hjartans list fyrir uppáhalds fólkið þitt í flottustu karaoke herbergjum landsins (að okkar mati!)

Diskó herbergið

Sökktu þér ofan í heim glitrandi veggja og pallíetta þar sem diskódrottningin ræður ríkjum. Vegna þess að allt er vænt sem vel er grænt.

Herbergið er staðsett á neðri hæð staðarins og rúmar allt að 8 manns í sæti, en geta verið fleiri. Enn fremur er það búið glæsilegum diskóvegg, diskókúlu og diskóljósum.

Til að tryggja sem besta upplifun bjóðum við upp á tvo hljóðnema með standi og tvo aðskilda skjái. Að lokum státar herbergið af atvinnuhljóðkerfi sem lætur röddina þína skína.

30% afsláttur sunnudaga – miðvikudaga.

50% afsláttur fyrir kl. 18 alla daga.

Drama herbergið

Mjúkt flauel, ofvaxin mynstur og almennt seventies dive drama í rauða rýminu.

Herbergið er staðsett á efri hæð hússins (Silfurtungl), og rúmar 8 manns í sæti. Herbergið er með diskókúlu, rauðum velúr bekkjum, rauðu retro veggfóðri, tveimur hljóðnemum, frábæru hljóðkerfi og tveimur skjám.

30% afsláttur sunnudaga – miðvikudaga.

50% afsláttur fyrir kl. 18 alla daga.

viltu meira fjör?

Fáðu fréttir af tilboðum og viðburðum