Nafn | Bullseye Darts & Drinks (Tales From Iceland ehf.) |
---|---|
Kennitala | 700317145 |
Vsk | 128757 |
Sími | 4546000 |
Netfang | [email protected] |
Heimilisfang | Snorrabraut 37. 105 Reykjavík |
Þjónustuframboð
Bullseye Darts & Drinks (Tales From Iceland ehf.) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vöru eða þjónustu fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Aldurstakmark
Á Bullseye er 20 ára aldurstakmark eftir kl 18:00 fimmtudaga, föstudaga og laugardaga. Aðra daga vikunnar þarf meðalaldur hvers hóps að baki bókun að vera 20 ár, (m.ö.o. ekki barna- eða ungmennahópar).
Veitingar
Óheimilt er að neyta utanaðkomandi veitinga á Bullseye. Ef kaupandi er staðinn að því að smygla áfengi eða neyta utanaðkomandi veitinga eða eiturlyfja á Bullseye áskilur Bullseye sér rétt til að vísa honum á dyr án endurgreiðslu pöntunar og að hafna honum aðgangi að staðnum amk. eitt ár þar á eftir.
Afhending vöru/þjónustu
Undir einstaka kringumstæðum geta píluspjöld og brautir verið tvíbókuð og/eða ómögulegt að raða hópum saman á samliggjandi spjöld. Bullseye gerir sitt ítrasta til að leysa úr slíkum aðstæðum en getur í slíkum kringumstæðum mögulega þurft að bjóða viðskiptavinum aðra tegund pílubrautar en bókuð er, og endurgreiðir þá viðskiptavini verðmismum ef einhver er.
Verð og endurgreiðslur
Öll verð í vefverslun eru með virðisaukaskatti ef við á. Miðar í afþreyingu og gjafakort er ekki hægt að skila, og eru ekki endurgreiddir. Það á einnig við ef einum eða fleiri einstaklingum í hópi sem hugðist koma saman er meinaður aðgangur á Bullseye, s.s. vegna aldurs eða ölvunar.
Breytingar á bókun
Hægt er að breyta bókun, enda sé það gert með 4 klst. fyrirvara. Bókunum er eingöngu breytt af kaupanda á "bullseye.is - MEIRA", ekki símleiðis eða í tölvupósti. Bókanir sem ekki eru nýttar, er ekki hægt að nýta síðar og þær eru ekki endurgreiddar.
Vernd persónuupplýsinga
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Varúð og skemmdir
Kaupandi skal gæta fyllstu varúðar í veittri afþreyingu seljanda og spilar pílu á eigin ábyrgð. Hann skal eingöngu kasta pílu að eigin spjaldi og aðeins frá merktri kastlínu þegar enginn stendur milli kastlínu og píluspjalds. Óheimilt er að ganga inn á annarra brautir. Kaupandi er ábyrgur fyrir skemmdum sem hann veldur á búnaði. Kaupandi ábyrgist að upplýsa þá þátttakendur sem hann býður til leiks um framangreindur skyldur þeirra og ábyrgð.
Yfirhafnir og önnur verðmæti.
Bullseye býður ekki upp á vaktað fatahengi eða vörslu verðmæta fyrir viðskiptavina sína og gildir einu þótt starfsmaður kunni að hafa tjáð viðskiptavini að hann/hún muni hafa auga með eða gæta tiltekins hlutar. Öll verðmæti viðskiptavinar, þmt. en ekki takmarkað við yfirhafnir, símar, veski, töskur og pokar eru á ábyrgð viðskiptavinar meðan hann/hún dvelur á Bullseye.
Lög og varnarþing
Samningur þessi lýtur íslenskum lögum. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Tales from Iceland ehf.
DBA Bullseye Darts & Drinks
Snorrabraut 37 105 Reykjavík
Sími 454-6000 [email protected]s Kt. 700317-1450
E-Commerce by SalesCloud
Bullseye Darts & Drinks (Tales From Iceland ehf.) partners with SalesCloud to provide secure sales & payment processing.